"Skjaskot/Screengrab" Farvavinur#3
"Í fæðingarorlofinu sá ég gamlan þátt með Birni Th. þar sem hann ræddi í sjónvarpssal um Kjarval. Hann sat í stúdíói við borð og benti á verkin á skjá og ræddi um listamanninn. Í salnum sátu áhorfendur og rétt glitti í stúlku sem sat þar, sneri baki við okkur sem fylgdumst með heima, hún var greinilega í Stüssy-hettupeysu, sem var einn stærsti pósturinn í tísku 10. áratugarins. Hún og peysan áttu jafnmikið heima í þættinum og þau voru líka í algjörri andstæðu við Björn Th. og Kjarval. Í mínum augum brann þetta allt saman í eitt." Verk eftir Skarphéðinn Bergþóruson af sýningunni "Tvínóna forever" sem stendur yfir í Farva til 2. maí, Álfheimum 4, Reykjavík. Verkið er silkiprentað á grafíkpappír, í upplaginu 20, númerað og áritað. Verkið fæst bæði án ramma og innrammað í svartan álramma með speyglafríu gleri. Bolurinn er hluti af verkinu og fylgir með, þú einfaldlega ferð í vöruna hér, velur stærð og bætir í körfuna.
Specifications
- útfærsla
- án ramma, innrammað
Variants (2)
- án ramma — 80000.00 ISK — In stock
- innrammað — 90000.00 ISK — In stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.