Hríma fyrir fullorðna

Hríma fyrir fullorðna

Brand: Sunna María
1100.00 ISK In stock Buy at Merchant

Hríma er nokkuð einföld peysa, prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er öll prjónuð slétt, nema á stroffum. Jafnar útaukningar eru á berustykkinu. Þegar valin er stærð til þess að prjóna, þá er best að velja stærð eftir aðbúið er að mæla þann sem prjónað er á og velja stærð út frá þeim málum. Mál á ermum og bol eru gefin upp í kvennastærðum, en auðvelt er að lengja ermar og bol eftir því á hvern er prjónað. Stærðir: XSmall, (Small), Medium, (Large), XLarge, (2XL), 3XL, (4XL), 5XL. Yfirvídd: 99, (105), 110, (116), 122, (129), 137, (146), 154 cm. Prjónfesta: 17/10 á 5 mm. prjóna. Prjónar: Sokkaprjónar 4.5 mm og 5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4.5 mm og 5 mm. Langur hringprjónn (80 cm) 4.5 mm 5 mm. Garntillögur: Edy Angola Alpaca Merino, Pasquali Alpaca Fino, Cascade 220. Garnmagn: Edy Angola: 300, (300), 350, (350), 400, (450), 450, 500 g Pasquali: 400, (450), 500, (550), 600, (650), 700, (750), 800 g Cascade 220: 400, (500), 500, (600), 600, (700), 700, (800), 800 g

Variants (1)
  • Default Title — 1100.00 ISK — In stock

AI Readiness

Good foundation, but some important product data is still missing.

81%