Kirami verönd M Misty með þaki

Kirami verönd M Misty með þaki

SKU: 220 3654
1499000.00 ISK Backorder Buy at Merchant

Verönd fyrir Misty‑línuna er fullbúin eining sem er auðvelt að tengja við aðrar Misty‑byggingar. Veröndina má setja á milli saunaklefa, skiptiklefa eða hvíldarklefa. Einnig er hægt að nota veröndina sem sjálfstæða einingu, til dæmis sem skjólgóða sólverönd, útisturtu, kaldann pott eða sumar­eldhús. Fáanlegt í mismunandi stærðum og má tengja saman til að stækka rýmið Veröndin samanstendur af bakvegg, þaki, gólfi og tveimur burðarbitum að framan. Ytra byrði bakveggjarins er úr sama hitameðhöndlaða Greni og Misty‑saunan. Innra byrði bakveggjar og þaks er úr hitameðhöndluðum viðarlistum sem gefa létt og nútímalegt yfirbragð. Gólfið er úr hitameðhöndlaðari Furu sem tryggir samræmt og fallegt útlit. Bitarnir að framan gera það auðvelt að tengja veröndina við saunaklefa, skiptiklefa eða hvíldarklefa á mismunandi hátt. Þakið er úr sama clicklock‑þakefni og aðrar Misty‑einingar, sem tryggir hnökralausa tengingu. Veröndin er fest við saunu eða búningsklefa og tengd neðst við flutningsstoðir. Þakið er tengt með U‑laga milliplötu. Veröndin er með LED borða á milli bakveggjar og þaks sem skapar mjúka, óbeina birtu og undirstrikar form panelanna. Tvö innfelld LED‑ljós í loftinu veita aukabirtu þegar þörf er á.

How AI sees this product

The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.

78%