2019 Pesquera Reserva
Pesquera er flaggskip Ribera del Duero-frumkvöðulsins Alejandro Fernandez. Vínið og héraðið varð frægt á níunda áratugnum þegar vínrýnirinn Robert Parker kallaði Pesquera Petrus Spánar. Hann gaf víninu háa einkunn en þó ekki 100/100 eins og flökkusögur herma. 100% Tempranillo eins og öll rauðvín Alejandós. 14 mánuðir í amerískri eik og 6 mánuðir í flösku. Mjög dökkrauðblátt. Frískleg lykt af rauðum berjum með smá votti af myntu og píputóbaki. Ferskt og mjúkt í bragði, smá appelsína, mjúk tannín, mynta og lakkrís. Fáguð ljúf ending. Ekki eins mikill bolti og Pesquera var áður fyrr. Hentar grilluðu kjöti, sérstaklega lambi og svíni.
Variants (1)
- Default Title — 6200.00 ISK — In stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.
80%