Prins Póló - live á Bræðslunni 2015
Einn af uppáhaldsstöðum Prins Póló var Borgarfjörður Eystri og tónlistarhátíðin Bræðslan átti sérstakan stað í hjarta Svavars Péturs. Það var því mjög gaman að fá boð um að spila á hátíðinni árið 2015 og hóað var í einvala lið tónlistarmanna til að spila með. Spilagleðin leyni sér ekki á upptökunni! Æfingar fóru fram dagana fyrir Bræðsluna á Karlsstöðum í Berufirði, sælla minninga. Tónleikarnir voru teknir upp og nú hafa dáðadrengirnir á bak við Bræðsluna gefið út Prins Póló settið á vínyl, í takmörkuðum og númeruðum eintökum, alls 200 stk. Havarí er með 100 stk. í sölu og svo verður að sjálfsögðu hægt að næla sér í eintak á Bræðslunni ´26, 26. júlí. Hlið A Bragðarefir Hamstra sjarma Tipp Topp Hlið B Finn á mér Niðrá strönd París Norðursins Hljómsveit: Svavar Pétur Eysteinsson Berglind Häsler Rósa Guðrún Sveinsdóttir Kristján Freyr Halldórsson Sigríður Thorlacius Guðmundur Óskar Guðmundsson Jónas Sigurðsson Þetta er fjórða live útgáfan af tónleikum Bræðslunnar, sem aðstandendur hátíðarinnar gefa út. Upptaka og hljóðblöndun: Haffi Tempó Umslag: Hafþór Snjólfur
Variants (1)
- Default Title — 5900.00 ISK — In stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.