Heklaðu þinn eigin sauna hatt / 4. sept / morgunnámskeið
Vertu með og heklaðu þinn eigin sauna hatt! Námskeiðið er tvö skipti: Fyrra skipti fer fram á vinnustofu Flóðs & fjöru á Faxatorgi, Faxafeni 10. 2. hæð föstudaginn 4. september kl. 9:30-11:30. Þá færðu útprentaða uppskrift og við hefjumst handa við heklið. Byrjendur og upprifjendur geta fengið kennslu. Áður en við hittumst aftur klárar þú hattinn þinn og þæfir hann í þvottavél samkvæmt leiðbeiningum sem þú færð með þér heim eftir fyrri hittinginn. Í seinna skiptið er hisst við Fargufuna við Skarfaklett í Laugarnesi þar sem við förum í gusu undir leiðsögn Heru. Í gufugusu leiðir Hera þrjár stuttar lotur inn í gufunni til að mynda með viðeigandi ilmolíum, þara, tónlist, handklæðatilþrifum og blævængjum. Góður hiti í sánunni og kæling í hafinu, grasinu eða loftinu á milli.vBoðið er upp á vatn og hressingu. Gusan tekur rétt rúman klukkutíma. Dagsetningar & tími: Fös. 4. sept - kl. 9:30-11:30 & lau. 19. sept kl. 13:30-14:45 Verð: 13.900 kr. Innifalið er hekl kennsla, útprentuð uppskrift & gusan Það sem þú þarft að útvega er Drops Snow garn og heklunál (skráðir þátttakendur fá upplýsingar um hvar er best að fá þetta garn og mögulega afslætti) Námskeið hentar vel fyrir byrjendur & upprifendur. Handavinnukennari & gusumeistari: Hera Sigurðardóttir. Sköpun og handavinna eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín. Afbókunarskilmálar á námskeið Ef afbókað er með meira en tveggja sólarhringa fyrirvara fæst skráningagjaldið endurgreitt. Ef afbókað er innan eins sólarhrings fæst skráningagjaldið ekki endurgreitt. Alltaf velkomið að hafa samband og athuga hvort önnur dagsetning henti sé þess óskað.
Variants (1)
- Default Title — 11900.00 ISK — Out of stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.