Falsterbro beige 250x350
Falsterbo Beige – Handofin ullarmotta Falsterbo Beige er falleg handofin ullarmotta sem sameinar tímalausa skandinavíska hönnun og vandað handverk. Hlýir beige tónar ásamt grafísku mynstri skapa rólegt og fágað yfirbragð sem passar jafnt í nútímaleg sem klassísk heimili. Flatofna áferðin gerir mottuna einstaklega fjölhæfa og þar sem hægt er að snúa henni við og nota báðar hliðar nýtist hún enn betur í daglegri notkun. Ullin er slitsterk, náttúrulega óhreinindafráhrindandi og þægileg undir fótum, sem gerir Falsterbo að frábærum kosti í stofuna, borðstofuna, eldhúsið, ganginn eða svefnherbergið. Eiginleikar Handofin úr 100% ull Varp úr 100% bómull Hægt að snúa mottunni við og nota báðar hliðar Slitsterk og með náttúrulega óhreinindafráhrindandi eiginleika Fallegt grafískt mynstur í hlýjum beige litum Hentar í stofu, borðstofu, eldhús, gang og svefnherbergi Þykkt: um 7 mm Þar sem hver motta er handunnin geta komið fram smávægilegar breytingar á lit, mynstri og stærð. Það er hluti af sjarma handverksins og gerir hverja mottu einstaka. Umhirða: Ryksuga reglulega í sömu átt og vefnaðurinn án bursta eða með flötum bursta. Best er að ryksuga á lágum styrk eða með sérstaka mottu styllingu það ber að varast að ryksuga kanta mottunar eða kögur því þá er áhætta að þeir/það skemmist. Þegar átt er við bletti þá er mikilvægast ef um blautan blett er að ræða að ná upp bleytuna fyrst með þurrum eldhúspappír. Þá er tekin litlaus klútur og mild litlaus sápa og dempað á blettnum, ekki nudda heldur endurtaka aftur þar til bletturinn er farinn. Classic Collection mælir aðeins með að fagaðili hreinsi erfiða bletti og heilhreinsun á mottum.
Specifications
- Stærðir
- 250x350-sérpöntun
Variants (1)
- 250x350-sérpöntun — 215000.00 ISK — Out of stock
How AI sees this product
The more complete this product's details, the more confidently AI assistants can understand and recommend it.