Landsbjörg
Skemmtileg útivistarpeysa með vísan í merki Landsbjargar Munstur er neðst á ermum og bol og axlastykki. Peysan er prjónuð í hring neðanfrá og upp. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Prjónuð úr léttlopa. Stærðir S M L XL Yfirvídd 91 100 108 117 Ermalengd dömu: 47 48 49 50 Ermalengd herra: 50 51 52 53 Lengd á bol dömu: 36 37 38 39 Lengd á bol herra: 40 42 44 46 Efni og áhöld Sokkaprjónar nr 3½ og 4½ Hringprjónar nr 3½ og 4½ Rennilás Prjónfesta 10 x 10 cm = 18 L og 24 umf á prjóna nr 4½. Garn: Prjónuð úr léttlopa frá Ístex. Miðast við 50g dokkur. 4 litir: Litur A: 9434 - 6, 7, 8, 9 dokkur Litur B: 9419 - 2 dokkur í öllum stærðum Litur C: 0051 - 1 dokka í öllum stærðum Litur D: 1411 - 1 dokka í öllum stærðum
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.