Ísvél 3 tonn / sólarhring – skelís
Skelísvél – 3 tonn Öflug og áreiðanleg 3 tonna skelísvél, sérstaklega hönnuð fyrir krefjandi sjávarumhverfi. Þessi vél þolir vel þann velting og titring sem fylgir notkun um borð í bátum og skipum en einnig hentar hún vel fyrir vinnslur. Hún er smíðuð til að standast tæringu og mikla seltu, að því marki sem eðlilegt getur talist og er búin vatnskældum eimsvala. Þarf ekki salt í vatnið. Sérstök áhersla er lögð á endingargóð efni fyrir kröfuharða notendur, þar sem allir helstu íhlutir eru úr hágæða ryðfríu stáli til að tryggja hámarks tæringarvörn og langan líftíma við erfiðar aðstæður. Helstu eiginleikar: Ryðfrítt stál í gegn: Íshnífur, ísframleiðsla og allur rammi eru smíðuð úr slitsterku ryðfríu Cr.Ni stáli. Framleiðsla: Skilar 3.000 kg af ís á sólarhring, eða um 125 kg á klukkustund. Kælimiðill: Notar eingöngu umhverfisvænni R449a kælimiðil. Sjávarþolin hönnun: Sérhönnuð til að þola hreyfingar og seltu; getur notar sjó eða ferkst vatn til ísframleiðslu og er með vatnskældan eimsvala. Búnaður innifalinn: Kemur með fullbúnu stjórnborði og öflugri vatnsdælu. Pressa: Búin áreiðanlegri hálfhermetískri pressu með mikla afkastagetu sem hefur verið prófuð við hita allt að 45 °C. Tæknilegar upplýsingar: Eiginleiki Lýsing Ísframleiðsla 3000 kg / 24 klst (125 kg/klst) Kælimiðill R449a Kæliafkastageta 18.750 W Þykkt íss 1,8 – 2,2 mm Gerð pressu Semí-hermetísk (20 HP) Rafnotkun pressu 11,5 kW/h (21,5 Amp straumnotkun) Gerð eimsvala Vatnskældur Uppgufunarhitastig -28 °C Rafmagn 380V / 50Hz / 3Ph Mál (B x L x H) 1000 x 1500 x 1700 mm Op fyrir ís 460 mm Krafa um dæluflæði 13,5 m3/klst Vatnsþrýstingur 1 bar krafa Þyngd 690 kg
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.