BLUETTI RV5 Stjórnborð
Miðlæg stjórnskjár fyrir RV5 rafkerfið BLUETTI E-pad er aðalskjár stjórnkerfisins fyrir RV5 rafkerfið. Á einum skjá sérst hvað er að gerast í RV5 kerfinu, B4810 rafhlöðunum, E-panel og sólarsellunum, ef þær eru til staðar. Rauntímayfirsýn er yfir notkun, hleðslustrauma og hleðslustöðu, og hægt er að stýra lykilaðgerðum beint án þess að þurfa að skipta á milli margra tækja eða forrita. E-pad er 10,1 tommu litasnertiskjár til að stjórna og fylgjast með rafkerfinu. Á einni síðu sést hversu mikið afl kemur inn frá rafmagnsneti, rafstöð, sólarsellum eða rafgeymi/alternator, og hvað er verið að nota hverju sinni, bæði á AC og DC. Villumeldingar, viðvaranir og stöðuupplýsingar birtast skýrt svo hægt sé að bregðast fljótt við þegar þess þarf. Tengingar og samskipti BLUETTI Epad er hannaður sem fastur stjórnskjár í húsbíl, bát, sumarhúsi, eða vinnubíl. Hægt er að knýja skjáinn með USB-C (5V / 3A) eða í gegnum RJ45 tengi (12–60V, afl og gögn í sama kapli). Fyrir samskipti við aðra hluta kerfisins notar E-pad, BLUETTI CAN, sem tryggir hnökralausa samþættingu við RV5, B4810 og E-panel. Í gegnum Expand BUS er einnig hægt að tengja hann við ytri kerfi og samskiptastaðla eins og NMEA 2000 og RV-C, sem gerir hann sérstaklega áhugaverðan fyrir stærri húsbíla, snekkjur, hús og farartæki með fyrirliggjandi stjórnnet um borð. Ethernet-tengi (RJ45), USB-A og microSD-rauf eru til staðar fyrir nettengingu, uppfærslur, annálaskrár og greiningu. Skynjarar og viðvaranir E-pad gerir meira en að birta stöðu rafkerfisins. Í gegnum skynjara er hægt að tengja allt að þrjá hitaskynjara og þrjá hæðar- eða stöðuskynjara, til dæmis fyrir ferskvatns og skólptanka. Að auki eru tvö stafræn inntök fyrir reyk- og kolmónoxíðskynjara eða önnur viðvörunarmerki, ásamt tveimur relay-úttökum sem hægt er að nota meðal annars fyrir sjálfvirka gangsetningu rafstöðvar eða hitavörn. Þannig verður E-pad miðlægur skjár bæði fyrir rafkerfið og mikilvæg öryggis- og stöðumerki ökutækis, húsa eða báts. Uppsetning og hönnun BLUETTI E-pad er ætlaður til fastrar uppsetningar innandyra, til dæmis í stjórnborði fyrir ofan hurð eða í tæknirými ökutækis eða skips. Skjárinn vegur um 0,67 kg og mælist um það bil 247 × 158 × 33,9 mm. Með IP20-vörn er hann ætlaður fyrir þurr og varin innirými. Stærðin er nægilega mikil til að sýna gröf og stöðuyfirlit skýrt, en samt nógu nett til að falla snyrtilega inn í mælaborð eða innréttingu. Samþætting í BLUETTI RVSolar 48 V raforkukerfinu Í BLUETTI rafkerfinu vinna RV5, B4810, E-panel og E-pad náið saman. RV5 sér um umbreytingu orku og hleðslu, B4810 myndar 48V rafhlöðubankann, E-panel dreifir AC og DC rafmagni til allra hringrása, og E-pad sameinar allt á einum skjá. Þetta sýnir gott yfirlit fyrir eftirlit, stillingar og tilkynninga, svo hægt sé að reka orkukerfið í húsbílnum, bátnum eða utan nets á skipulagðan og öruggan hátt.
Variants (1)
- Default Title — 124900.00 ISK — In stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.