5. viðburður. Katrín Halldóra, fordrykkur, matur og gisting á Hótel Búðum. Val um tvær dagsetningar: 27. & 28. nóvember. Kjör fyrir tvo.
Katrín Halldóra á Hótel Búðum Tónlistarveisla með kvöldverði & gistingu. Fyrsti í aðventu. Tónlistarveislan á Hótel Búðum snýr aftur í þriðja sinn og hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti vetrarviðburður landsins. Sex helgar í röð fyllist hótelið af lifandi tónlist, einstökum mat og hlýlegri stemningu í hjarta Snæfellsness. Helgina 27. og 28. nóvember mun hin yndislega og hæfileikaríka söng- og leikkona, Katrín Halldóra, mæta á Hótel Búðir og heilla gesti með sínum dásamlega söng. Katrín mun flytja hinar ýmsu dæguperlur þar sem rómantíkin mun svífa yfir vötnum. Í ljósi þess að þetta er fyrsta helgin í aðventu verður lagavalið einnig í jólalegum búningi sem mun verða falleg og dásamleg blanda við söguríkt og jólaskreytt umhverfi hótelsins. Viðburðurinn verður því uppfullur af frábærri tónlist, jólalegri stemningu, góðum mat og notalegri dvöl á hótelinu. Innifalið fyrir tvo • Fordrykkur við komu • Þriggja rétta kvöldverður • Lifandi tónleikar með Katrín Halldóra í lounge rými hótelsins • Gisting í eina nótt • Ljúffengur morgunverður daginn eftir Tryggðu þér sæti í tíma. Undanfarin tvö ár hafa nær allar tónlistarhelgar selst upp og eftirspurnin verið gríðarleg. Við hlökkum til að taka á móti þér og þínum! Fyrir fyrirtækja- og hópabókanir er hægt að hafa samband á budir@budir.is Myndir af herbergjum eru teknar úr Standard Superior herbergi úr nýrri viðbyggingu hótelsins. Myndir af öðrum herbergjatýpum má sjá inn á heimasíðu Hótel Búða. Afbókunarskilmálar Pakkinn er óendurgreiðanlegur. Komi upp aðstæður sem gera þér ókleift að mæta biðjum við þig vinsamlegast um að hafa samband við okkur eigi síðar en 48 klukkustundum fyrir komu. Við munum þá leitast við að finna bestu lausnina, hvort sem það er að færa bókunina á aðra dagsetningu eða útbúa gjafabréf að sama verðmæti. Ath. Vegna mikillar aðsóknar er ekki hægt að nýta gjafabréf yfir tónleikahelgar. Gjafabréfin gilda hins vegar alla aðra daga (okt til lok maí).
Specifications
- Dagsetningar
- Föstudagurinn 27. nóvember, Laugardagurinn 28. nóvember
- Herbergistegund
- Loft herbergi (eldri bygging), Standard herbergi (eldri bygging), Deluxe herbergi (eldri bygging), Minni Svíta (eldri bygging), Superior Standard (nýja bygging), Superior Deluxe (nýja bygging), Búðir Stóra Svíta (nýja bygging)
Variants (14)
- Föstudagurinn 27. nóvember / Loft herbergi (eldri bygging) — 79000.00 ISK — In stock
- Föstudagurinn 27. nóvember / Standard herbergi (eldri bygging) — 83000.00 ISK — In stock
- Föstudagurinn 27. nóvember / Deluxe herbergi (eldri bygging) — 85000.00 ISK — In stock
- Föstudagurinn 27. nóvember / Minni Svíta (eldri bygging) — 109000.00 ISK — In stock
- Föstudagurinn 27. nóvember / Superior Standard (nýja bygging) — 87000.00 ISK — In stock
- Föstudagurinn 27. nóvember / Superior Deluxe (nýja bygging) — 89000.00 ISK — In stock
- Föstudagurinn 27. nóvember / Búðir Stóra Svíta (nýja bygging) — 129000.00 ISK — Out of stock
- Laugardagurinn 28. nóvember / Loft herbergi (eldri bygging) — 79000.00 ISK — In stock
- Laugardagurinn 28. nóvember / Standard herbergi (eldri bygging) — 83000.00 ISK — In stock
- Laugardagurinn 28. nóvember / Deluxe herbergi (eldri bygging) — 85000.00 ISK — In stock
- Laugardagurinn 28. nóvember / Minni Svíta (eldri bygging) — 109000.00 ISK — In stock
- Laugardagurinn 28. nóvember / Superior Standard (nýja bygging) — 87000.00 ISK — In stock
- Laugardagurinn 28. nóvember / Superior Deluxe (nýja bygging) — 89000.00 ISK — In stock
- Laugardagurinn 28. nóvember / Búðir Stóra Svíta (nýja bygging) — 129000.00 ISK — Out of stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.