Montana 6 Air Uppblásið Tjald
Framúrskarandi vatnsheldni, innbyggt ljósakerfi og rúmgóð Dark Ambassador svefnherbergi Skoðaðu tjaldið í 3D Frá Outwell í Danmörku kemur Montana 6 Air uppblásna tjaldið. Tjaldið er klassískt braggatjald með stórum Dark Ambassador svefnherbergjum sem bæta svefn og draga úr birtu. Einfalt og þægilegt að tjalda með Rigid Air System sem tryggir hraða og örugga uppsetningu. Tjaldið er með einstöku innbyggðu Outwell Light System ljósakerfi sem gefur fallega og stillanlega birtu í alrými (aflgjafi fylgir ekki). Dönsk hönnun 6 manna Dark Ambassador svefnherbergi (230 cm) 6000mm vatnsheldni Innbyggt Outwell Light System ljósakerfi Montana 6 Air er með 6000mm vatnsheldni með límdum saumum, sem gerir það mjög hentugt fyrir íslenskar aðstæður. Ytra tjaldið er úr Outtex® 6000 Express RS polyester efni með ripstop sem er PFC frítt og gefur framúrskarandi vatnsheldni og styrk. Slitsterkur, vatnsheldur og innsaumaður tjaldbotn heldur raka og vindi úti. Gott pláss er í tjaldinu í stóru alrými og innbyggt hliðarskýli (side pod) gefur skjólgott aðgengi. Framhurðin er með togglufestingu sem opnar upp á fullt útsýni og loftflæði. Framveggurinn er með möskva og PVC gluggum með aðskildum gardínum svo hægt er að stýra birtu og lofti að vild. Mjög fljótlegt og einfalt er að tjalda því og ætti að taka aðeins 24 mínútur að reisa það, eða 11 mínútur til að vera tilbúið að flytja inn dýnur, stóla, töskur og slíkt. Auðvelt er að koma rafmagnsköplum að í gegnum litla lúgu á hlið tjaldsins. Í svefnherbergjunum eru 230 cm löng Dark Ambassador herbergi með möskva loftunaropum sem tryggja þægilegan svefn. Vasar í svefnherbergjum geyma smáhluti. Rain Safe hliðarhurð gefur sveigjanlegt aðgengi og vernd gegn veðri. Tæknileg atriði: Ytra lag: Outtex® 6000 Express RS polyester UV vörn: UPF 30+ Vatnsheldni: 6000 mm Fjöldi: 6 manna Uppsetning: Ytra lag fyrst eða allt í einu Súlur: Uppblásnar - Rigid Air System Hámarksloftþrýstingur: 9 psi/0.6 bar Pökkunarstærð: 99 x 51 x 46 cm Innihald: Pumpa, tjaldhælar, viðgerðarsett, 10 stk krókar fyrir Hooktrack kerfið, ventlaherðari. Lengd: 620cm Breidd: 400+70cm Hæð: 215/225 cm Þyngd: 33.0 kg Uppsetningartími: u.þ.b. 24 mínútur ×
Variants (1)
- Default Title — 309990.00 ISK — Out of stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.