Þórir – borð og bekkir 6 manna | Útihúsgögn.is
Þórir – borð og bekkir úr harðviði með sléttum, hefluðum köntum Þórir er ekki í framleiðslu sumarið 2026. Traust og endingargóð garðhúsgögn úr harðviði, hönnuð með sléttu og hefluðu yfirborði fyrir þægilega og snyrtilega notkun. Þórir er handsmíðaður úr efnisþykku Douglasgreni eða ljósri eik og hentar sérstaklega vel fyrir opin svæði, tjaldsvæði, skóla, leiksvæði og veitingastaði. Sambyggð hönnun tryggir stöðugleika og kemur í veg fyrir að hlutir losni eða fýki til í vindi. Douglasgreni eða eik? Kíktu hér til að fræðast. Helstu kostir og sérstaða Beinir og heflaðir kantar Þung, sterk og stöðug hönnun Handsmíði úr sérvöldum Douglas eða eik Endist árum saman Hægt að velta upp setum Hægt að panta í öðrum lengdum Frí heimsending á Suðvesturlandi Lýsing á efni og hönnun Þórir er sambyggt borð og bekkir sem hentar vel þar sem þörf er á áreiðanlegri, sterkri og viðhaldslítilli lausn. Hönnunin er einföld og norræn, með beinum línum og hlýlegri áferð sem fellur að öllum umhverfum – hvort sem er á leiksvæðum, í skólum eða á opinberum svæðum. Sléttir og heflaðir kantar gera setuna þægilega og auðvelda þrif, sem gerir Þóri að vinsælli lausn fyrir staði þar sem bæði útlit og notagildi skipta máli. Douglasgrenið kemur fúavarið frá verksmiðju og hentar því vel til notkunar allt árið án þess að þarfnast innigeymslu. Þetta eru útihúsgögn sem fýkur ekki og endast árum saman í íslenskum aðstæðum. Stærðir og upplýsingar Lengd: 175 cm (hægt að sérpanta aðrar lengdir) Fjöldi sæta: 6 manna Efni: Douglasgreni eða eik Áferð: Heflaðir og sléttir kantar Hönnun: Sambyggt borð og bekkir með lömum á setum Inningeymsla: Þarfnast ekki innigeymslu Afhending Frí heimsending á Suðvesturlandi. Afgreiðslutími er að jafnaði 3–5 vikur ef varan er ekki á lager. Þórir dregur nafn sitt af Þóri, syni Grettis gamla – tákn styrks, norræns eðlis og trausts byggingarmáta. Rétt eins og þessi borð og bekkir, sem standast ár eftir ár við íslenskar aðstæður.
Variants (1)
- Default Title — 179000.00 ISK — Out of stock
AI Readiness
Good foundation, but some important product data is still missing.